Hæhó!

13.12.2007 20:55:38 / tula

Netið að gera mig CRAZY!!

Klukkan er 01:50. Ég lá bara upp í rúmi í mestu makindum að horfa á C.S.I. miami og allt í einu slökknaði á sjónvarpinu og séríurnar í gluggunum og ljósin í glerskápunum mínum blikkaði og svo var allt í einu kolsvarta myrkur....! Það fyrsta sem ég hugsaði var „nei anskotinn! Herberginu mínu hefur slegið út!“ Svo ég tók upp símann og kveikti á vasaljósinu á honum og fór að rafmagnstöflunni, neinei, þá var allt slegið inn, svo ég bara „whaaat?“ ákvað nú af einhverjum ástæðum að kíkja út um gluggann og öss, hvað haldiði að ég hafi séð? Ég sá ekki neitt, Eskifjörður var svartur, sá reyndar smá ljós á skipunum við höfnina en það var það eina, ef þau hefðu ekki verið í landi hefði verið kolsvarta myrkur! Hafdís mín, eins gott að við séum ekki á rúntinum lengur, bara svona þín vegna;D Anna talva?...... æjj ég er vond að hneikslast á þessu, fyrirgefðu!:/  samt soldið fyndið..... ok hætt! Aftur í myrkrið hérna hjá mér, nokkuð gott að hafa tölvu á batteríi annars væri ég bara í algjörri myrkraholu hérna. Ég er samt geðveikt sorgleg held ég núna, sit og... nei, meina, ligg og pikka upp blogg í word! ...því auðvitað datt netið út líka þegar helvítis rafmagnið fór! Eru samt einhverjir fleiri en ég sem upplifðu þetta hræðilega rafmagnsleysi???

Axel kom heim í dag, vaknaði meira að segja klukkan 9 í morgun eftir innan við 4 tíma svefn bara til að hitta hann og fara með á nesk;D ...enda er ég orðin illa soðin í hausnum núna! Kanski ekki skrítið enda orðin vön að sofa að minnsta kosti 12 tíma á sólarhring!

Ég er sibbin!

Hvað á ég samt að gera á morgun? Einhverjar hugmyndir? Eða gera á morgun, gera í dag því ég verð pottó sofnuð áður en þetta rafmagnsleysi hættir og þarf að skella þessu á netið þegar ég vakna!

Ég held að ég sé að verða löst eða að hálsinn minn sé í stórvægilegum mótmælagjörðum! Ég sagði um daginn að ég hefði ekki fengið hálsbólgu af viti síðan kirtlarnir voru teknir úr mér í febrúar (mynnir að það hafi verið í febrúar) en það var tóm lygi, varð drulluveik einu sinni í Norge. Hálsinn greinilega aðeins að minna mig á hversu miklum sársauka hann getur valdið! Endar með því að ég losa mig bara við hann og verð hálslaus, haha.. er ég húmorslaus eða asni? Eða kanski bæði? Ég ýmindaði mér mig með hausinn einhvernveginn upp úr öxlunum og engin háls! Held að allt sé fyndið fyrir mér núna...

Ég var allt í einu búin að skrifa klikkað mikið og bara rugl, vona að þú hafir ekki látið lífið úr leiðindum við að lesa þetta... ég á mér ósköp fábrotið líf þessa daganna... fyrir utan það já, ég fór í viðtal hjá capacent í dag í sambandi við starf hjá Alcoa, ég er búin að bíða síðan ég kom frá Norge eftir viðtali og svo bíð ég núna spennt eftir svari, er svo klikkað að vona að ég fái starf þarna, hef heyrt að það sé svo fínt að vinna þarna! ...en eins og hún sagði þá er nánast engin undir 22 ára að vinna þarna.... vonir mínar minnkuðu heilmikið við það...! held að aldurinn minn soldið miklu máli í þessu, held samt enn í vonina! Mig langar í eitthvað framtíðarstarf, eitthvað annað en sjoppustarf eða eitthvað svona afgreiðslustarf. Ég er alls ekki að segja að þau séu slæm enda hef ég unnið í nokkrum svoleiðis störfum, langar bara í eitthvað annað, eitthvað öðruvísi!

Ok nú er ég bara allt í einu mætt á bls 2 í word, í leturstærð 11 svo þetta hlítur að vera orðið slæmt, efast um að fólk meiki að lesa þetta allt saman! En ef svo er þá er sá og hinn sami dullegur og ég eins og stolt móðir! ;D

Nú er búið að vera rafmagnslaust í c.a. hálftíma og ég næstum hætt að sjá á skjáinn og puttarnir alveg allsvakalega hægvirkir svo ég segji bara góða nótt!;D

Ætla svo að njóta rafmagnsleysisins, svartamyrkur, best að sofa í... góða nótt aftur,

Kristín

P.S. Netið er í tómu tjóni hérna, ég er heppinn ef ég næ að opna einhverja síðu á netinu, það hangir inni í mesta lagi mínútu í einu!!! Þetta er þriðji dagurinn sem er svona og ég að sturlast á þessu! Tekur órartíma að gera eitthvað á netinu!! Hef ekki þolinmæði í þetta lengur. Hringdi útaf þessu í gær og talaði um þetta svo þetta er allt í vinnslu, eða ég ætla að vona það. Hvað á ég að gera á daginn? Ekki er ég komin með vinnu ennþá....


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 02:11:32 / tula

....

Margt hefur verið í gangi í hausnum á mér síðan ég bloggaði síðast.. En því miður get ég ekki bloggað um það allt saman...

En ég er búin að vera rosa gaman að setja upp jólaseríur og baka smákökur, gera jólakort og liggja í leti:| Aldeilis stuð á mér ha?

Ég er gjörsamlega búin að snúa sólahringnum við, var að takast að snúa honum til baka en þá varð ég veik og vakti alla síðustu nótt og svaf síðan mestallan daginn.

Ég sit fyrir framan sjónvarpið með stillt á Sirkus, það eru tónlistarmyndbönd núna. Það er alveg ótrúlegt hvað annað hvert lag er eins, eitthvað svona skrítið rokk, með sama taktinum, mjög spes. Er að bíða eftir að C.S.I. byrji á skjáeinum.

Af hverju er svona auðvelt að snúa sólahringnum þannig að maður sofi langt fram á dag og vaki langt fram á nótt og ógeðslega erfitt að snúa því aftur til baka? Ég skil það ekki.

Vinnuviðtal í næstu viku! 

Góða nótt

Kristín 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 01:00:59 / tula

Atvinnuleysi og nakin köttur!

Ég tek til baka það sem ég skrifaði um að það væri létt að fá vinnu hérna í Fjarðabyggð. Jú, það er kanski létt ef manni er nákvæmlega sama við hvað maður vinnur við. Mér er það því miður ekki. Ég er búin að vera að skoða blöð, netið, alskonar auglýsingar og líka að reyna að láta mér detta eitthvað í hug, það eru bara fleiri en ég í þessum aðstæðum býst ég við svo flest allt bitastætt hverfur strax. Er búin að sækja um á 3 stöðum og fá neikvætt frá einum stað, býð spennt og í voninni um að fá jákvætt út úr öðru hvoru hinu, þó ég hafi ekki mikla trú á því, ég er svo ung og örugglega margir aðrir sem hafa sótt um:|  Finnst bara svo erfitt að sitja og bíða, leiðinlegt að hafa ekkert að gera. Ég verð bara löt af því, það er leiðinlegt. Ef ykkur dettur eitthvað sniðugt djobb í hug fyrir eða vitið af einhverju endilega látið mig vita:) Ég er nú ekki búin að vera lengi heima atvinnulaus en er samt orðin leið á því.

Ég fór með Þulu í eitthvað dæmi hjá Fjarðarbyggð í dag, fá ormalyf... Í fyrsta lagi þurftum við að bíða í 2 klukkutíma eftir dýralækninum. Hann kláraði örmerkin á Norðfirði og dreif ormalyf í norkkrar kisur og hljóp síðan út og ætlaði að ná í fleiri örmerki... en engin beið eftir þeim, ætli hann hafi ekki notað þau á Reyðarfirði. Einhver kona kláraði að gefa kisunum ormalyf... Hundarnir voru svo farnir að mæta því seinkunin var svo mikið, þetta var býsna skrautlegt. Það var eitt sem fór virkilega í mig og það var að einn tiltekinn aðili hérna á Eskifirði hafði rakað allt hárið af kisunni sinni nema rétt loppurnar, skottið og andlitið. Greyið kisan var greinilega með soldið sítt hár. Það var rosalegt að sjá greyið, með rakaðar lappir og alveg aftur að eyrum, alveg krúnurökuð, þvílíkt stutt hár, 2-4mm, myndi ég giska á. Ástæðan var að eftir sumarið hefði verið svo mikið af fræi og drasli í feldinum og þess vegna hefði hann rakað hann. Hann gerir þetta víst við greyið kisuna á hverju hausti! HALLÓ! Greyða greyinu annan hvern dag yfir sumarið og baða hana stöku sinnum, þá þarf greyið ekki að ganga í gegnum að vera gjörsamlega nakin og hvað þá á haustinn þegar er farið að vera kalt, maður hefur bara áhyggjur af heilsu kisunnar. Þetta fór aðeins í mig!

Planið er að kíkja til Akureyri um næstu helgi! Allavega ég og Hafdís, vonandi náum við að sannfæra Röggu um að koma með en það er á "sjáum til" hjá henni! 

Endilega láta mig vita ef þið vitið um eitthvað sniðugt djobb hérna í Fjarðabyggð fyrir mig:)

Knús og kossar

Kristín 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 21:48:12 / tula

Komin heim!

Jæja, ég hef enga afsökun lengur fyrir að blogga ekki! 

Ég sit bara á rassgatinu hérna heima og veit ekkert hvað ég á að gera af mér:| 

Ég er komin heim til Íslands, það er rosa gott að vera komin heim til fjölskyldunnar og vinanna:) Er einmitt bara búin að vera að njóta þess að vera með þeim núna síðan ég kom heim. Er líka búin að vera rosa dugleg að taka til í herberginu mínu, en það er ekki alveg komið í gott stand ennþá því. Er ekki búin að nenna að gera neitt í því núna í 2 daga. 

Ég er ekki ennþá komin með vinnu, er samt búin að fá 2 vinnutilboð og ég sjálf búin að sækja um 2  vinnur, þannig að það verður ekki mikið mál að fá vinnu hérna, ætla ekki að flýta mér í það samt, bara koma mér fyrir og finna síðan eitthvað sem mig langar að gera:)

Ég hef nú ekkert voðalega mikið að segja í bili, ekki alveg í stuði til að blogga! 

En blogga síðar,

Kristín 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 22:10:11 / tula

Lalala...

Ég er nú ekki búin að gera neitt mikið undanfarið, bara þetta venjulega hérna heima:)

Ég er að fara til Hamar á morgun á hestanámskeið, læra meira á hesta. Það verður pottó mjög gaman:)

Ég hef ekki fengið miklar fréttir að heiman núna undanfarið en vona að það sé allt gott að frétta af öllum þar:)

Ég hef nú ekkert svo voðalega mikið að segja.  Eiginlega ekkert bara. Ákvað nú samt að skella inn einu bloggi hérna bara svona til að láta vita að ég sé ennþá á lífi.

Herbergið mitt er eitthvað svo tómlegt, skil ekki alveg út af hverju:| 

Ætla að reyna að taka einhverjar myndir á morgun og skella hérna inn!

Ja well, ég hef miklu minna að segja en ég hélt:S

Sakna ykkar allra heima á klakanum:)

Knús og kossar frá Norge,

Kristín  


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 18:39:57 / tula

Språkprøve í Lillehammer!

Nú er ég sko sibbin!

Ég var í Lillehammer í dag að taka språkprøve! Dagurinn byrjaði klukkan 7 í morgun, þá vaknaði ég og skellti mér í sturtu, klæddi mig og hafði mig til, um hálf 8 fór ég síðan upp með Sunnevu og við fengum okkur að borða og svona, klukkan 5 mín yfir 8 röllti ég upp í veginn því ég fékk far með Tove niður til Vinstra. Síðan beið ég í c.a. hálftíma á lestarstöðinni eftir rútunni til Lillehammer. Fann mér svo sæti aftarlega í rútunni og steinrotaðist frá Ringebu og til Hafjell sem var c.a. hálftími. Ég kom til Lillehammer hálf 11 og prófið átti að byrja klukkan 11. En vitiði hvað Kristínu tókst, hún villtist í Lillehammer. Skildi kortið en var ekki að finna út hvar ég var á því, því það er ekki svo rosalega vel merkt þarna. Ég spurði nokkra hvar þetta væri og enginn hafði hugmynd um hvar Lillehammer voksenopplæring var. Þannig ég hélt áfram að leita, upp og niður götur, fram og til baka. Þegar klukkan var 7 mín í 11 var ég alveg að gefast upp, stoppaði gamla konu og spurði hana hvar sjúkrahúsið væri, hún sagði mér það svo ég tók sprettinn þangað en fór samt bara hálfa leið sem betur fer, af einhverjum ástæðum ákvað ég að stoppa og kíkja einu sinni enn á kortið og sá að ég stóð á götu sem var tveim götum frá húsinu sem ég átti að mæta, þá loksins vissi ég hvar ég var á kortinu. Ég tók sprettinn upp brekkuna og fann húsið á endanum, hljóp inn og mætti konu sem sagði að það væri verið að bíða eftir mér, þá var klukkan 2 mín yfir 11. Mér var ýtt inn í stofuna og ég hlammaði mér í stólinn, þvílíkt móð og útskýrði að ég hefði villst. Fyrst var hlustunarpróf sem tók 40 mín, svo var lesskilningur sem tók 60 mín, pása í 30 mín, skriflegt í 90 mín, pása í 30 mín og svo 30 mín munnlegt. Djísess, ég er hálf handlama eftir að hafa skrifað svona mikið, ég skrifaði samtals í meira en 2 klukkutíma í dag. Er ekki vön þessu lengur, maður hefur ekkert þol í svona. Hef ekki þurft að skrifa svona mikið síðan í grunnskóla. Ég spjallaði heilmikið við pólska konu, eina frá Rússlandi og eina frá Þýskalandi. Það var bara gaman, kynnast nýju fólki frá öðrum löndum. Eftir þetta allt saman fékk ég far heim með Gorsia og manninum hennar, en það er pólsk kona sem var með mér á námskeiðinu. Spjölluðum heilmikið saman um allt milli himins og jarðar enda klukkutími á milli. Þau slepptu mér út við A-K en það er vinnustaðurinn hans Jan á Vinstra og svo fékk ég far með honum heim. Þessi dagur var mun erifiðari en ég bjóst við. Heilinn minn er þreyttur, hugsa að ég fari snemma að sofa í kvöld. Ég fæ út úr prófunum 1. des og 10. des. Hlakka til að sjá hvað kemur út úr því.

Þreytukveðjur,

Kristín


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 15:06:01 / tula

Letidagur...

Mamma átti afmæli í gær, vill óska henni til hamingjiu með afmælið;***

Aldís Arna átti líka afmæli í gær og óska henni líka til hamingju með afmælið;***

Ég hef nú ekkert voðalega mikið að segja, við stelpurnar vorum bara 3 heima í gær og í dag því Jan og Brynja þurftu að fara til Oslo, þau koma heim aftur í dag.

Við erum bara búnar að hafa letidag í dag, horfa á barnaefni og svo svona aðeins í þvottahúsinu eftir þörfum og svo leika okkur smá í dúkkó og svona:) Er búin að vera slæm í bakinu núna undanfarið og var með hausverk í dag og engan vegin í formi. Jungleboken er voðalega vinsæl hjá Andreu Eli núna! Komum upp klukkan 9 í morgun og ætluðum að kíkja á barnatímann en Andrea Eli vildi ekki sjá neitt annað en Jungleboken svo við horfðum á hana. Ef þið fattið ekki hvaða mynd þetta er, þá er þetta myndin um Mogli, strákinn sem dýrin finna í skóginum og svo elst hann upp með þeim. Alveg ótrúlegt hvað hún getur horft oft á þessa mynd:)

Språkprøven er á þriðjudaginn og mig hlakkar svoldið til að sjá hvað kemur út úr því:) Á fimmtudaginn sagði kennarinn minn að ég væri búin með allt erfiðasta námsefnið sem hann ætti þarna og ef mér gengi vel á prófinu á þriðjudaginn þyrfti ég ekkert að koma aftur, þyrfi bara að æfa mig að tala meira. Mér persónulega finnst ég ekkert svo góð í Norsku, hefði viljað halda áfram á námskeiði að læra hana betur en það gengur ekki upp, myndi ekki græða neitt á því að halda áfram á þessu námskeiði því það er of létt fyrir mig. Það er ekki neitt svona framhaldsnámskeið, sem er nottla soldið spes.

Tæpar 7 vikur þangað til ég kem, er farin að hlakka pínu til að sjá alla aftur:) Verður samt leiðinlegt að fara héðan, á eftir að sakna þeirra hérna:|

Við Andrea Eli ætlum að skella okkur út í smá labbitúr, fá okkur smá frískt loft!

Hef ekki meira að segja í bili, endlilega látið heyra í ykkur!

Sakna ykkar allra heima á klakanum!

Knús og kossar frá Norge,

Kristín


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 21:08:31 / tula

Hitt og þetta!

Jæja, ég held að það sé komin tími á blogg...

Ég skellti mér á Hellbillies tónleikana um síðustu helgi, það var fínt. Varð full og rugluð:)

Þessi vika er búin að vera frekar venjuleg. Er samt búin að finna fyrir tilfinningu sem mig langar ekkert að hafa og skil ekkert af hverju er. Byrjaði að finna fyrir henni í síðustu viku. Helvítis heimþráin. Sakna allra heima alveg hrikalega mikið. Þetta gæti verið því það er svo stutt eftir af dvöl minni hérna. Skil ekki af hverju samt, það hefur allt verið eins og venjulega bara.

Byrjaði að spá í jólagjöfum í gær, er að spá í að kaupa þær hérna úti því ég efast um að það verði tími til þess þegar ég kem heim því ég kem korter í jól!

Ég er búin að vera að drepast í bakinu nánast alla vikuna, búin að éta íbux eins og nammi. Skil ekki alveg hvað er í gangi með það, líður eins og það sé einhver að reyna að snúa upp á mjóbakið á mér og þrýsta á það í leiðinni, ógeðslega vont, er að reyna að láta það ekki bitna á neinu hérna og held að það gangi nokkuð vel bara. Mér er líka búið að vera kalt í 2 daga.. það er eitthvað skrítið í gangi því yfirleitt er mér of heitt.

Jæja, síðasta námskeiðið á morgun fyrir prófið. Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr því. Fer til Lillehammer næsta þriðjudag í 4 tíma próf mynnir mig. Ég held að ég sé sú eina sem er að gera þetta af fúsum og frjálsum vilja bara til að gá hvað ég kann. Hinir eru flestir að drepast úr stressi held ég, enda hefur þetta áhrif á stöðu þeirra í landinu, með vinnu og fleira. Fyrir mig er þetta bara til gamans gert:)

Hún Ásta sæta á afmæli í dag, 19 ára skvís, vill óska henni hjartanlega til hamingju með daginn;****

Ásta sæta

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 10:05:12 / tula

Nýjar myndir!

Ég var að skella inn myndum frá partýinu hjá Malin um helgina, stal myndunum hjá Monicu:)

Nú er spurning hvort maður eigi að skella sér á Hellbillies um helgina, en þeir verða með tónleika á Vinstra á laugardaginn. Sé til:)

Knús og kossar frá Norge,

Kristín 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 21:36:43 / tula

Scary draumur!

Mér dreymdi nokkuð scary draum í nótt! Mig dreymdi að ég væri ólétt! Vaknaði hristandi hausinn liggur við! Ég er búin að pæla rosalega mikið í því hvort þetta gæti þýtt eitthvað eða hvort þetta sé bara því ég umgengst ólétta konu á hverjum degi, Brynju, og svo önnur sem ég hitti 3 daga í viku líka ólétt, hvort ég hafi brenglast eitthvað af því. Mig mynnir líka að óléttar konur dreymdu oft að þær væru óléttar, en það er ekki sjéns fyrir mig, ef svo væri þá væri ég komin með dágóða kúlu, því ég er búin að vera 4 mánuði hér í Norge. Ég ákvað nú samt að kíkja á draumur.is og athuga hvað þetta þýddi samkvæmt svona draumaráðningum:

Ólétta

Að dreyma að maður sé óléttur er góðs viti. Þetta táknar upphaf á einhverju nýju og spennandi í lífi þínu, jákvæðar breytingar eru í nánd.

Svo þetta er vonandi bara jákvætt.

Ég held að ég sé geðklofi! Ég held að það búi tvær mismundandi manneskjur í mér! Ég allavega breyti um skoðanir á ýmsum hlutum oft! og sömu hlutunum oftar en einu sinni og oftar en tvisvar! Hafið þið lent í því? Stundum langar mig að fara að rífast við sjálfa mig því ég á brjálæðislega erfitt með að ákveða ýmsa hluti. Kannist þið við þetta eða er ég furðufugl?

Ég verð nú bara að segja það að ég skil alveg af hverju sumir eru á móti hinum ýmsu þjóðum, að vissu leyti skil ég rasisma þó ég sé alls ekki rasisti sjálf. Ég var á norskunámskeiðinu í dag. Það er alveg ótrúlegt hvað þessir blessuðu afganistanar eru þröngsýnir. Undanfarnar vikur erum við búin að vera að læra um Noreg og sögu Noregs og höfum tekið upp hinar ýmsu umræður. Eins og til dæmis í dag þá vorum við að ræða lauslæti. Afganistanarnir vildu meina að allavega 50% af norskum stelpum/konum væru hórur og svæfu bara hjá hverjum sem er hvenar sem er. Það er nottla bara rugl. Þeir halda því fram að Afganistanskar konur séu ekki svona. Það er líka í reglunum þar að þær megi ekki hafa samfarir fyrr en eftir að þær eru giftar og ef þær gera það þá eru þær drepnar. En ég meina common, það er kanski þannig en í staðinn hafa þeir hóruhús og karlmennirnir geta farið og fengið sér að ríða þegar þeir vilja! Við töluðum einnig um skilnaði í dag. Voðalega fáir afganistanar skilja, en af hverju ætli það sé... hmm... kanski því konurnar eru háðar köllunum þar og geta ekki farið. Ef karlarnir verða leiðir á kellingunum fá þeir sér bara eina kellingu í viðbót, ekkert mál. Þetta er brjálað kallaveldi þarna og þvílíkt heittrúað lið. En einn þeirra sagði eitt í dag og ég hélt að ég myndi deyja ég hló svo mikið enda urðu þeir þvílíkt móðgaðir og ég hefði verið drepin ef við hefðum verið í Afganistan! Mæður karlanna velja konur handa sonum sínum! Í þessu líka kallaveldinu! Ég og Hild, kennarinn, höfum lent í ótrúlegustu rifrildum við þá um ótrúlegustu hluti eins og t.d. fóstureyðingar, föstuna o.s.fr. Ég meina common, það er komið árið 2007 og tæknin í hámarki og þeir samt að fasta og á móti hinu og þessu sem er bara sjálfsagt! Fyrir utan það að þeir eru í Noregi! HALLÓ!! Ef þeir ætla að búa hérna hvernig væri þá að aðlagast aðeins? Neinei, það er ekki hægt þeir vilja eigna sér landið.. fangelsin hérna eru yfirfull af þeim og samt geta þeir heimtað bænahús í fangelsin, common!!! Úff.. ég hljóma eins orðið eins og Norðmaður! þykir orðið svoldið vænt um þetta land, Norðmenn eru ekki eins furðulegir og þeir eru þekktir fyrir, þeir eru ekki mikið ólíkir Íslendingum, yndislegt fólk:)

Ég hugsa að ég gæti skrifað endalaust um þessa blessuðu flóttamenn, finnst eins og þeir ættu bara að vera heima hjá sér ef þeir geta ekki aðlagast aðeins aðstæðum í nýju landi. Ég veit að ég hljóma pínu rasisti en ég er það eiginlega ekki. Þetta fólk er yndislegt og mér líkar við það, mætti bara aðeins opna augun og hugan sinn fyrir breytingum.

Held að þetta sama vandamál eigi eftir að skapast á Íslandi því nú er búið að opna landið fyrir flóttamenn... spurning hversu jákvætt það er?

Ég sakna ykkar allra þarna heima á klakanum,

knús og kossar frá Norge,

Kristín.


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 20:46:06 / tula

BEILER!

Ég verð að viðurkenna það að ég beilaði á myndavélinni í gær! gleymdi henni í bílnum og nennti svo ekki að ná í hana:$

En það var rosa gaman í partýinu í gær, ruglaði of mikið í nojurunum, var sú eina sem var edrú á svæðinu. Allir vel drukknir! Ég sagðist meðal annars heita Jónas og svo var ég klikkað oft spurð hvernig maður segði hitt og þetta á Íslensku og ruglaði svoldið með það líka, bara gaman.

Ég komst líka að því að Norðmönnum líkar Íslenskt kjöt!

Hef voðalega lítið annað að segja.. gæti skrifað endalaust um þetta partý og hvað gerðist þar en hugsa að ég setji það ekki á netið. Veit ekki hverjir skoða og hverjir skilja... svo:)

Bara stutt og gott í kvöld!

Þangað til næst!

Kristín 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 14:23:50 / tula

Nýjar myndir!

Var að skella inn nýjum myndum, úr símanum!

Partý í kvöld, kem með myndir frá því á morgun;)

Kveðja

Kristín 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 14:56:34 / tula

Oslo Horseshow!

Ég held barasta að það sé komin tími á nýja bloggfærslu, langt síðan síðast!

Á sunnudaginn um síðustu helgi fórum við til Oslo, 6 kjellingar saman, eða Ég, Brynja, Sunneva, Maren, Grethe og Turid, Graupe-skvísur og Dalseter-skvísur. Kvöldið áður, laugardagskvöldið fórum við á Dalseter, borðuðum kvöldmat og gistum þar. Því við vöknuðum klukkan 5 um nóttina og lögðum af stað c.a. 20-30 mín seinna. Stoppuðum á Statoil í Lillehammer og fengum okkur morgunmat. Síðan var stefnan tekin á Oslo spektrum þar sem Oslo Horseshow var haldið. Vorum komnar þangað á milli 10 og 11. Þetta var bara geðveiki, að fylgjast með hindrunakeppnum og svo var, Shetlandsponnigalopp, það voru Shetlandspony að keppa í kapphlaupi, bara sætt að sjá það, 8-10 ára knapar. Mounted Games, það var líka snilld, alveg ótrúlegt hvað krakkarnir gátu, þeir voru að gera allskonar þrautir á hestunum og hoppuðu á bak á fartinum og ekkert mál, enda var hakann mín alltaf að detta á gólfið. Hester i frihet með JF Pigno, það var nú toppurinn myndi ég segja, það sem þessum manni tókst að gera með hestunum sínum, get varla lýst því, hakan mín lá bara á gólfinu og ég blikkaði varla auga á meðan á þessu stóð. Hann gat látið hestana elta sig, hneigja sig, þykjast sofa og alskonar æfingar, alveg ótrúlegt! Svo var margt fleira, rosa gaman! Við skoðuðum einnig alla hestabásana, það var fullt af búðum sem hafði komið og sett upp bása þarna og ótrúlegustu hluti var að finna þarna, allt fyrir hesta. Erfitt að lýsa hvernig þetta var, fólk verður bara að upplifa þetta sjálft. Á leiðinni heim fórum við í heimsókn til Morten, en hann á slatta af Íslandshestum, er með reiðskóla og leygju og leygjir þá einnig út á Dalseter. Síðan var farið beint að sofa þegar heim var komið, en þá var klukkan orðin hálf 1, allir orðnir virkilega lúnir og rosa ánægðir með æðislegan dag:D

Við Sunneva fórum í reiðtúr um daginn í skóginum hérna. Hesturinn minn varð hræddur og við enduðum inn á milli tránna og festumst en okkur tókst að leysa okkur, ekkert alvarlegt:)

Svo fór ég á norskunámskeiðið á þriðjudaginn og kynntist einn nýrri þar. Hún er frá Filippseyjum og virkar mjög fín. Hún býr í Skåbu og er 28 ára gömul, hún á mann sem er um 60 mynnir mig og hún er ólétt. Svoldið spes en samt bara svoldið krúttlegt:)

Í gærkvöldi fór ég upp í Skåbu að horfa á fótboltaleik á kafe´n, Noregur-Bosnía. Það var mjög gaman, Mike og Marius voru þar og ég sat með þeim kjánum og svo var fullt af öðrum, stútfullt. Leikurinn endaði 2-0 fyrir Noregi.

Annars er allt búið að ganga sinn vanagang hérna heima.

Þangað til nærst,

knús og kossar frá Norge,

Kristín ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 13:09:28 / tula

Hæhó!

Góðann daginn!

Það er allt gott að frétta hérna úr Graupe:)

Á laugardaginn fórum við inn á veiðisvæði að kíktum á kallana, færðum þeim kökur og svona:)

Á laugardagskvöldið var ég boðin í party upp í Skåbu og auðvitað skellti ég mér þangað. Kynntist fullt af sniðugu fólki:) Mér gekk alveg súper vel að tala norskuna og skilja hana, fyrsta skipti sem ég tala við norðmenn, annan en kennarann, heilar samræður á norsku. Það var bara gaman, partyið endaði reyndar á því að slökkvitæki var tæmt, sem betur fer úti og ein manneskja ætlaði að keyra heim full, en ég stoppaði hann af einhverjum ástæðum.

Það kom í fréttunum í fyrradag að elgveiðimaður hefði verið drepinn af skógarbirni. Manni brá svoldið því Jan og Frans eru búnir að vera á elgveiðum núna undanfarið. 

Það hefur ekki mikið gerst hérna, bara þetta vanalega, norskunámskeið í gær og keypti mér líka 2 gallabuxur.

Í dag er búin að vera þrifdagur í dag og svo er fótboltakeppni á milli fótboltaliðsins hennar Sunnevu og foreldra, hugsa að ég gerist foreldri á eftir og spili með þeim:P

En ég hef voðalega lítið meira að segja.

Kossar og knús frá Norge,

Kristín 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 12:11:21 / tula

Ég heiti Jónas!

Ég held barasta að það sé löngu komin tími á nýja bloggfærslu!

Lífið gengur bara sinn vanagang hérna á bænum, Brynja komin heim aftur frá Íslandi og svona. Hún kom með reiðbuxur handa mér þaðan, klikkað flottar og þægilegar:lol:

Síðasta laugardag ákváðum við að fara til Otta á Otta martnan, það er svona útimarkaður og tívolí og alls konar svoleiðis, Ég. Jan, Andrea Eli, Sunneva og Joakim skelltum okkur. Mér fannst svoldil kolaportstemning þarna. Allskonar rusl og nammi í boði og svo voru sölumennirnir útlendingar, samt gaman að skoða þetta! Eftir að hafa skoðað markaðinn ákváðum við Sunneva að skella okkur í tívolíið en Joakim fór með einhverjum strák að skoða meira á markaðnum. Við fórum og keyptum okkur 6 miða og fórum í bollana, eitthvað dancing flehh sem fór upp í loftið og í hringi í takt við tónlistina, í eitthvað snúningsdrasl og ég varð að klessu því Sunneva rann alltaf á mig... Svo fórum við líka í extreme, það var svo klikkað gaman, svona dót sem snýst og sveiflast hátt upp í loftið, þvílíkt adrenalínkick sem maður fékk í því en Sunneva greyið var ekki alveg að fíla það, skalf bara og kreisti á mér hendina:| Svo fórum við strax eftir það í bollana aftur og ég hélt að ég myndi deyja, ég var svo dofin eftir adrenalínkickið sem ég fékk í extreme að bara sat og mér fannst eins og allt væri að fara geðveikt hægt! Síðan lá leiðin heim....

Þessi vika hefur bara verið mjög fín, eyddum einum deginum í Vinstra og Andrea Eli og Sunneva fóru í klippingu og svo röltum við Sunneva í Sødorptunet og ég keypti mér húfu og vetlinga og hún húfu.

Við erum búnar að fara í reiðtúra og bara njóta lífsins;)

Náðum í hestana upp á Haugen og mér tókst að fljúga á hausinn og skrapa á mér olnbogann og hnéð, ég veit ekki hvað ég rann marga metra á maganum eftir veginum, það var dágóður spotti8| Svo lentum við í smá brasi að ná þeim heim því það var svo mikill leikur í þeim. En það tókst á endanum og allir voru settir inn í hesthús og gefið flugu- og ormalyf og burstaðir og greiddir og gerðir rosa fínir.

Heikir greyið er reyndar orðin lasin, er með hrossasótt og við höfum verið að fylgjast rosa vel með honum og taka hann út og viðrann aðeins með smá labbitúr hérna á bænum.

Ég prófaði að ríða á Dølehestinum í gær, hún er risastór og heitir faxmey og það er í fyrsta skipti sem ég ríð svona stórum hesti og í fyrsta skipti sem ég ríð berbak líka þannig að þetta var bara gaman:haha:

Ég og Sunneva erum svo bara búnar að vera að hestast aðeins í dag, fórum með Sólon og Palla uppá Haugen og riðum berbak uppeftir, það er bara snilld að ríða berbak. Svo fórum við smá labbitúr með Skugga og Heiki og frískuðum aðeins uppá þá. Ég söng fyrir Heiki frumsamið lag með frekar skondnum texta sem Sunneva var ekki alveg að fíla en Heikir fíla það í tætlur og sperrti eyrun:haha:

Við erum að fara að kíkja upp á skotsvæði til kallana núna seinni partinn og skoða veiðina, þeir eru víst búnir að skjóta 2 elgi, allavega síðast þegar ég vissi, gæti verið komið meira núna, þetta verður þá í fyrsta skipti sem ég sé elg í návígi. Hef bara séð þá í gegnum sjónauka, þetta eru bara skondin dýr, líta geðveikt klaufaleg út.

En ég er að spá í að fara að tjekka á hestunum aftur, sjá hvernig Heikir kallinn hefur það :)

Þangað til næst... Koss og knús frá Norge,

Kristín


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill
Myndir